Úrslitakeppni kvenna: SA - Björninn í kvöld

Mynd: Elvar Freyr Pálsson (01.03.2014)
Mynd: Elvar Freyr Pálsson (01.03.2014)


Í kvöld kl. 19.00 mætast SA og Bjönrinn í Skautahöllinni á Akureyri. Þetta er annar leikur í úrslitakeppni Íslandsmóts kvenna og getur lið SA tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í kvöld. 

SA vann góðan útisigur í Egilshöllinni sl. fimmtudagskvöld, sem var auðvitað nauðsynlegt eftir að Björninn hafði unnið deildina og tryggt sér oddaleiksréttinn. En með stuðningi áhorfenda er mögulegt að sjá til þess að ekki komi til oddaleiks - við þurfum sigur í kvöld og þá er titillinn í höfn.

Hokkíáhugafólk og aðrir Akureyringar og nærsveitungar ættu því að leggja leið sína í Skautahöllina á Akureyri í kvöld og hvetja okkar lið. Eins og áður hefur verið hamrað á hér á sasport.is: Stuðningur þinn skiptir sköpum! 

Ætlum við að halda Íslandsmeistaratitlinum þar sem hann á heima? Já, og þá verður þú að gera þitt!