Úrslitakeppni karla: Víkingar mæta Birninum í kvöld

Stöndum þétt saman. Mynd: Ásgrímur Ágústsson
Stöndum þétt saman. Mynd: Ásgrímur Ágústsson


SA Víkingar taka á móti Birninum í kvöld kl. 20.00 í úrslitakeppni Íslandsmótsins í íshokkí. Þetta er fyrsti leikur liðanna. Vinna þarf þrjá leiki til að hampa titlinum.

Eins og margoft hefur verið minnt á hér á síðunni og á Facebook er stuðningur áhorfenda gríðarlega mikilvægur fyrir liðið. Við hvetjum því Akureyringa til að fjölmenna í kvöld. 

Annar leikur liðanna verður í Egilshöll á sunnudag kl. 16.30 og þriðji leikurinn í Skautahöllinni á Akureyri þriðjudaginn 18. mars kl. 19.30. Ef fleiri leiki þarf til að skera úr um sigurvegara verður spilað í Egilshöllinni fimmtudaginn 20. mars og ef til oddaleiks kemur verður hann á Akureyri laugardaginn 22. mars.

Einhver forföll eru í báðum liðum, en leikmannalistar liðanna eru komnir á vef ÍHÍ.