Úrslit Kristalsmóts C-flokka

Það má með sanni segja að S.A. krakkarnir á C - Kristalsmótinu í Reykjavík sem fór fram um helgina hafi staðið sig alveg frábærlega, í fyrsta lagi voru þau félaginu og sjálfu sér til mikillar fyrirmyndar, bæði á ísnum og utan hans. Börnin komu heim með 2 gull 3 silfur og eitt brons. Glæsilegur árangur - Til hamingju öll!

Emilía Rós Ómarsdóttir - silfur -  8C
Jóhann Jörgen Kjerúlf - gull - 9C
Sóldís Diljá Kristsjánsdóttir - silfur - 10C
Lóa Aðalheiður Kristínardóttir - silfur 12C
Heba Þórhildur Stefánsdóttir - brons 12C
Grétar Þór Helagson - gull - 13C