Úrslit fyrri dags á Dragon Trophy


SA-stúlkurnar þrjár eru í 12., 20. og 22. sæti eftir fyrri dag á Dragon Trophy listhlaupsmótinu. 

Emilía Rós Ómarsdóttir er í 12. sæti eftir stutta prógrammið á Dragon Trophy listhlaupsmótinu sem fram fer í Ljubljana í Slóveníu um helgina. Elísabet Ingibjörg Sævarsdóttir er í 20. sæti og Hulda Dröfn SVeinbjörnsdóttir í 22. sæti.

Á úrslita- og tölfræðisíðu mótsins má nálgast nánari upplýsingar um stöðuna, stigin eftir fyrri dag og sundurliðun einkunna. 

Dagskrá mótsins
Heimasíða mótsins