Um vinamótið og æfingar!

Vegna Vinamótsins laugardaginn 16. apríl verða nokkrar breytingar hjá flestum flokkum á næstu dögum.  Á morgun miðvikudag 13. apríl verða miðar sendir heim með iðkendum allra flokka!  Ég bið alla um að kíkja á miðana eða lesa sér til hér undir tenglinum "lesa meira"!

Krakkar í 5. flokki (græna hópnum), 6. flokki og 7. flokki!

 

Næsta laugardag 16. apríl er vinamót hjá okkur, þ.a.l. munu æfingar falla niður þann dag.  Í staðinn verða æfingar fyrir ykkur mánudaginn 18. apríl milli 18 og 19!

 

 

 

1. flokkur!

 

Vegna vinamóts verður æfing hjá ykkur milli 17 og 18 nk. föstudag (15. apríl) með 2. flokki og einnig falla æfingar niður daginn eftir, eða laugardaginn 16. apríl!
Mánudaginn 18. apríl verður ísæfing milli 17 og 18 en svo af-ís á eftir milli 18 og 19!

 

 

 

 

Stelpur í 4. flokki-gulum!

 

Vegna vinamótsins nk. laugardag verður ykkur boðið upp á aukaæfingu föstudaginn 15. apríl milli 18 og 19!  Þetta er síðasta æfing fyrir mótið og hvetjum við ykkur til að mæta J

 

 

 Stelpur í 4. flokki-rauðum!

 

Því miður falla æfingar niður hjá ykkur nk. laugardag 16. apríl vegna vinamóts!

 

 

 Iðkendur í Gull-flokki, 1., 2. og 3. flokki sem ekki eru að keppa á vinamóti!

 

Æfingar falla niður vegna vinamóts laugardaginn 16. apríl.  Hvetjum ALLA til að koma og horfa á og hvetja keppendur!
Æfing verður fyrir Gull flokk mánudaginn 18. apríl milli 18 og 19!