U18 drengja landslið Íslands í íshokkí mætt á HM til Bosníu-Hersegóvínu

U18 drengja landslið Íslands í íshokkí er nú mætt til Sarajevó í Bosníu-Hersegóvínu þar sem liðið mun keppa á HM í 3. Deild B næstu daga. SA á 12 fulltrúa í liðinu að þessu sinni og einnig aðila í fararstjórn liðsins. Auk Íslands eru Túrkmenistan, Lúxemborg, Bosnía-Hersegóvína, Taíland og Suður-Afríka í riðlinum. Ísland mætir Lúxemborg í fyrsta leik á föstudag kl. 15:00 á íslenskum tíma og ætti fyrirfram að vera þægilegur fyrsti leikur fyrir Íslenska liðið áður en við mætum Túrkmenistan og svo Taílandi sem eru bæði tvö með öflug lið. Nýtt fyrirkomulag er á þessu móti sem verið er að prófa en liðin leika fyrst 3 leiki í undanriðlum og þar á eftir spila liðin 2 leiki í undanúrslitum og úrslitakeppni. Fylgjast má með allri tölfræði, stöðu og dagskrá mótsins á heimasíðu alþjóða íshokkísambandsins. Allir leikir mótsins eru í beinu streymi á streymisveitu Íshokkísamband Íslands og aðgengilegir fyrir áskrifendur á IcehockeyIceland.tv. 

Leikmenn SA í liðinu:

Elías Orri Rúnarsson
Elvar Ingi Siguðarson
Elvar Örn Skúlason
Aron Ingason
Magnús Sigurólason
Finnur Bessi Finnsson
Alex Máni Ingason
Bjartur Westin
Aron Freyr Gautason
Mikael Eiriksson
Askur Reynisson
Sölvi Blöndal
 
Þjálfarar liðsins eru þeir Gauti Þormóðsson, Gunnlaugur Thoroddsen og Hákon Marteinn Magnússon. Sigurður Sveinn Sigurðsson er fararstjóri, tækjastjóri liðsins er Ingi Snorri Bjarkason og styrktarþjálfari er Jóhann Páll Jónsson.

 

Við óskum liðinu góðs gengis á mótinu – Áfram Ísland!

 

Leikir Íslands:

13. febrúar kl. 15:00 Ísland – Lúxemborg

14. febrúar kl. 11:30 Ísland - Túrkmenistan

16. janúar kl. 15:00 Ísland - Taíland

18. febrúar undanúrslit

19. febrúar úrslit