U18 ára liðið á leik gegn Írum í kvöld

U18 ára liðið spilar í dag við Írland í öðrum leik sínum á HM í Mexíkóborg.  Fyrsti leikurinn var gegn Ísrael í fyrradag og hann vannst nokkuð létt eða 12 - 0.  Í lok leiks var Sigurður Reynisson valinn maður leiksins sem er ekki amalegt í sínum fyrsta landsleik.  Tækinni fleygir fram og það er gaman að segja frá því að leikirnir eru aðgengilegir á netinu beint, sem er auðvitað frábrært fyrir hokkíáhugafólk og sérstaklega fjölskyldurnar heima.Leikurinn verður kl. 16:00 að staðartíma en það er kl. 22:00 í kvöld.  Áfram Ísland!