Þorramót í krullu

Laugardagskvöldið 22. janúar stendur Krulludeildin fyrir opnu móti - Þorramóti í krullu.

Gert er ráð fyrir að mótið verði með svipuðu sniði og Áramótamótið, þeir keppendur sem mæta verði dregnir saman í lið og leiknir verði þrír stuttir leikir. Allir eru velkomnir, jafnt nýliðar og þeir sem reyndari eru, karlar og konur. Reyndar eru konur sérstaklega velkomnar í framhaldi af átakinu "Á svellið stelpur!" og ástæða til að hvetja þær sem hafa komið að prófa krulluna til að mæta á þetta mót og taka vinkonurnar með.

Nánari upplýsingar um mótið og nákvæma tímasetningu koma inn síðar.