Tap fyrir Nýja Sjálandi í fyrsta leik á HM kvenna.

Í gærkvöldi spilaði íslenska kvennalandsliðið sinn fyrsta leik á heimsmeistaramótinu í Reykjavík.  Mótherjarnir voru andfætlingar okkar frá Nýja Sjálandi og það er skemmst frá því að segja að okkar stúlkur biðu 3 - 1 ósigur.  Íslenska liðið fór þó vel af stað og skoraði fyrsta mark leiksins í fyrstu lotu en þar var á ferðinni Birna Baldursdóttir eftir sendingu frá Guðrúnu Blöndal.  Nýja Sjáland jafnaði leikinn fyrir lok lotunnar og bættu svo við tveimur mörkum fyrir leikslok.

Loturnar fóru því 1-1, 1-0 og 1-0.  Þær Ný-Sjálensku áttu betri leik og voru meira með pökkinn en okkar stúlkur og ef skot á mörk eru skoðuð þá má sjá að á meðan Ísland átti 16 skot átti Nýja Sjáland 33 og í fyrstu lotu voru skotin 15 á móti 3.  Það þýðir líka það að í nógu hafi verið að snúast hjá Karitas Halldórsdóttur markverði, enda var hún valinn besti leikmaður íslenska liðsins í leikslok.  Brottvísanir voru svipaðar, 10 mín á NS og 12 á Ísland.

Í gær mættust einnig S-Afríka og S-Kórea og lauk þeim leik aðveldum 6 - 0 sigri Kóreu.

Næsti leikur íslenska liðsins verður á þriðjudaginn gegn Rúmeníu kl. 20:00