Sýning á laugardaginn

Ljósmynd:  Þórir Tryggvason
Ljósmynd: Þórir Tryggvason

Á laugardaginn fer fram sýning hér í Skautahöllinni til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis á vegum sýningarhóps Listhlaupadeildar.  Sýningarhópinn skipa 12 stelpur sem allar hafa æft hjá félaginu í mörg ár en ákváðu að stofna þennan fyrsta sýningarhóp félagsins í haust.  Hópurinn hefur verið með sýningaratriði á mótum auk þess sem hann kom fram í leikhléi í úrslitaleiknum í Íslandsmótinu í íshokkí.

Sýningin á laugardaginn hefst kl. 17:30, aðgangseyrir er kr. 1.000.- og rennur ágóðinn til krabbaeinsfélagsins.  Frítt er inn fyrir 10 ára og yngri og nú er um að gera fyrir alla þá sem vilja sjá skemmtilega sýningu og styrkja gott málefni í leiðnni að koma í Skautahöllina á laugardaginn.