Spennandi leikir í innanfélagsmótinu


Um síðastliðna helgi kepptu krakkarnir í 4., 5., 6. og 7. flokki í innanfélagsmóti og buðu foreldrum og öðrum upp á skemmtilega og spennandi hokkíleiki.

Keppnin í 4. flokki var mjög jöfn eins og sést á úrslitunum. Appelsínugulir unnu báða leiki sína með eins marks mun, en Svartir og Grænir gerðu jafntefli sín á milli.

Svartir – Grænir 3-3
Appelsínugulir – Svartir 2-1
Grænir – Appelsínugulir 1-2

Mörk og stoðsendingar:
Axel (A) 2/1
Fannar (S) 2/0
Sæþór (G) 2/0
Heiðar (S) 1/1
Einar (G) 1/0
Dagur (G) 1/0
Róbert (A) 1/0
Andri (G) 1/0
Heiðar (A) 1/0

Fréttaritari hefur ekki yfirlit um úrslit leikja hjá þeim yngri.

Eins og alltaf á þessum mótum var það með smstilltu átaki foreldra og þjálfara sem allt gekk snurðulaust fyrir sig.