SA Jötnar Íslandsmeistarar U22 liða

U22 lið Jötna tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn um helgina eftir sigur á Húnum í Egilshöll. Jötnar unnu fyrri leikinn 5–2 í tvíhöfðanum og tryggður sér þar með Íslandsmeistaratitlinn en þetta var sjöundi sigur liðsins á Húnum í vetur.

Í upphafi vetrar tóku Jötnar þátt í forkeppni Toppdeildar karla ásamt meistaraflokksliðum SA Víkinga, Fjölnis og Skautafélags Reykjavíkur. Jötnar sýndu þar að liðið ætti vel erindi í þá deild með því að vinna meistaraflokks lið Fjölnis 8-2 á heimavelli og tapaði svo naumlega gegm meistaraflokksliði SR í Laugardal. Að lokinni forkeppni skiptust liðin í meistaraflokk og U22 deild þar sem Jötnar og Húnar spila 12 leiki sín á milli og hafa Jötnar nú unnir 7 af 9 leikjum og búnir að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.

Við óskum leikmönnum og þjálfurum til hamingju með árangurinn í vetur.