Punktar frá fundi vegna æfingabúða 2008!

Fundur vegna æfingabúða var haldinn miðvikudaginnn 9. júlí.

Punktar yfir þau atriði sem rædd voru á fundinum:

 

  • Tímataflan sem upphaflega var birt var birt með fyrirvara um breytingar. Vegna komu- og farartíma erlendra þjálfara urðu smávægilegar breytingar á tímatöflunni en hún hefur þegar verið uppfærð og birt á heimsíðunni. Mjög mikilvægt að fylgjast vel með síðunni okkar.
  • Gíróseðlar fyrir helmingi æfingabúðagjalds hafa þegar verið sendir heim, annar gíróseðill mun bráðlega verða sendur út fyrir restinni.
  • Helga Margrét og Audrey Freyja munu þjálfa fyrstu 5 dagana. Aðaláherslan verður á alhliða undirbúning fyrir veturinn.
  • Erlendir þjálfarar kynntir. Margaret O´Neill frá Bretlandi mun koma ásamt 2-3 skauturum 28. júlí - 8. ágúst. Margaret hefur víðtæka reynslu sem þjálfari og er meðal annars fyrrum þjálfari Jennu McCorkel sem er einn besti skautari Breta í dag. Iveta Reitmayerova mun koma ásamt börnum sínum, Ivönu og Peter, 12. - 17. ágúst. Margir muna eflaust eftir Ivetu því hún þjálfaði hjá okkur 2 vetur. Iveta hefur mjög mikla reynslu af skautaþjálfun og fór meðal annars með dóttur sinni sem keppti fyrir hönd slóvakíu á heimsmeistaramóti í Gautaborg um sl. páska. Við erum mjög heppin að fá þessa þjálfara og erum viss um að iðkendur verði alsælir með þjálfun hjá þeim.
  • Hólmfríður Jóhannsdóttir mun sjá um þol og þrek bæði í skautahöllinni og upp á Bjargi fyrstu 2 vikurnar.
  • Sigyn og Diljá munu sjá um ballett 3svar í viku seinni 2 vikurnar.
  • Boðið verður upp á heitan/kaldan mat alla virka daga í æfingabúðunum. Þá daga sem æfingabúðirnar erum um helgar þurfa iðkendur að koma með nesti.
  • Eins og í fyrra þá getum við alltaf þegið aðstoð frá foreldrum eða aðstandendum. Okkur þætti frábært að fá fólk til að aðstoða okkur í hádegismatnum. Þessi aðstoð felst í því að sækja mat út í bæ og skammta iðkendum mat. Ef allir foreldrar taka að sér 1-2 daga þá náum við að manna öll hádegin J. Allý sér um skráningu í gegnum e-mailið allyha@simnet.is.
  • Eins myndum við glöð þiggja aðstoð við að skutla iðkendum í afístíma upp á Bjarg. Þ.e.a.s. skutla á Bjarg og niður í höll aftur. Sjá aðra frétt fyrir nánari upplýsingar.
  • Helga Margrét þjálfari mun setja inn smá grein bráðlega um t.d. klæðnað og annað í þeim dúr sem tengist æfingabúðum. Fylgist alltaf vel með heimasíðunni og munið að afís er byrjaður!