Opnunarleikir SA kvenna á heimavelli um helgina

Kvennalið SA spilar sína fyrstu leiki á tímabilinu á heimavelli um helgina þegar liðið fær Fjölni í heimsókn í Skautahöllina á Akureyri og spila tvíhöfða á laugardag og sunnudag. SA hefur aðeins leikið tvo leiki á tímabilinu til þessa en hefur unnið báða leikina og spilað vel en SA bætti við sig þremur nýjum leikmönnum fyrir tímabilið og breiddin í liðinu er mikil. Fjölnir er á toppi deildarinnar með 19 stig en liðið hefur spilað 7 leiki og aðeins tapað einum. Fyrri leikurinn hefst kl. 16:45 á laugardag og sá síðari kl. 11 á sunnudag. Miðaverð er 1000 kr. og frítt inn fyrir 16 ára og yngri. Forsala miða er hafin í miðasöluappinu Stubb. Fyllum stúkuna og styðjum okkar lið til sigurs!