Opna Þriðjaflokks-Mótið um helgina

Það er hokkíveisla í Skautahöllinni þessa helgi. Hún byrjaði með leik í 3.fl. rétt fyrir 10 í gærkvöldi ( já þið lásuð þetta rétt ) og hélt áfram í morgun kl. 08,00 og verður svo fram haldið í dag og svo er leikið til úrslita í fyrramálið, dagskránna má skoða hér.

Kl 21.10 í kvöld er svo Leikur í Meistaraflokki karla þar sem eigast munu við SA-Víkingar og Björninn sem kemur til að sjá og sigra ( sá það á heimasíðu þeirra ) en nokkuð er víst að Víkingar munu að fornum sið berjast til síðasta dropa og hvergi gefa eftir. Hörkuskemmtun í Skautahöllinni og skorað á fylgismenn og aðdáendur að mæta og standa fyrir stemmingu sýnu liði til stuðnings.    Áfram SA ..........

3.fl. leikurinn í gærkvöldi var á milli SA og Bjarnarins og endaði með jafntefli 4-4.

1. leikurinn í morgun var á milli SA og SR og endaði með sigri SR 2-8