Ógreidd mótsgjöld

Orðsending frá gjaldkera Krulludeildar.

Enn eiga einhver lið eftir að ganga frá greiðslum mótagjalda frá því fyrir áramót og eru fyrirliðar beðnir um að ganga frá sínum málum sem fyrst.

Þegar Janúarmótið var auglýst láðist að geta um þátttökugjald, sem er 7.000 krónur á hvert lið. 

Bankareikningur: 0302-13-301232
Kennitala: 590269-2989

Þegar greitt er inn á bankareikning Krulludeildar er mikilvægt að fram komi skýring á því fyrir hvaða lið og í hvaða móti er greitt og að staðfesting sé send í tölvupósti á netfang gjaldkera, davidvals@simnet.is.

Æfingagjald, kr. 2.000, mun koma fram sem valkvæð greiðsla í heimabanka krullufólks á næstu dögum. Þar sem Krulludeildin notar kennitölu Skautafélagsins birtist greiðslan sem innheimta frá Skautafélaginu og á kennitölu þess.