Nýr Zamboni íshefill tekinn í notkun í Skautahöllinni

Steini svellagerðarmaður og nýji Zamboni 552 íshefilinn.
Steini svellagerðarmaður og nýji Zamboni 552 íshefilinn.

Nýr Zamboni íshefill var tekinn í notkun í Skautahöllinni í dag og leysir þar með af hólmi þann gamla sem hefur þjónustað félagið dyggilega í 23 ár.

Nýja vélin er sérsmíðuð fyrir félagið í Zamboni verksmiðjunni í Bandaríkjunum og flutt til landsins í gegnum Zamboni Europe í Svíþjóð. Tæknimaður frá fyrirtækinu fylgdi vélinni til landsins, sá um gangsetningu hennar og tryggði að allt væri eins og það ætti að vera áður en hún fór í sína fyrstu ferð á svellinu. Svellagerðarmenn félagsins fengu jafnframt kennslu á vélina og nýjan búnað hennar.

Um er að ræða sömu 552 gerð og áður, en með nýrri og betri tæknibúnaði sem skilar enn betri ísgæðum og einfaldari notkun. Í grunninn er hún þó sami áreiðanlegi vinnuhesturinn sem hefur reynst félaginu ákaflega vel í gegnum tíðina.

Þetta er ekki aðeins annar Zamboni íshefill félagsins heldur sá þriðji í röðinni. Á undan þeim gamla var blár gasknúinn Zamboni í notkun hjá félaginu á árunum 1993–2003.

Gamli Zamboni-íshefillinn verður nú settur til hliðar en áfram hafður til vara eftir meira en tveggja áratuga dygga þjónustu við félagið.

Með tilkomu nýju vélarinnar eru aðstæður til ísgerðar í Skautahöllinni betri en nokkru sinni fyrr og félagið því vel í stakk búið til að þjónusta iðkendur og gesti hallarinnar um ókomin ár.