Nýr framkvæmdastjóri

Ljósm. Ásgrímur Ágústsson
Ljósm. Ásgrímur Ágústsson

Jón Benendikt Gíslason hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri Skautafélags Akureyrar.  Jón er félaginu að góðu kunnur en hann hefur æft og keppt fyrri félagið frá barnsaldri.  Jón er 31 árs gamall, sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og flutti heim frá Danmörku í byrjun árs eftir nokkurra ára dvöl ytra.

Jón hefur margvísleg tengls við félagið og sjálfur spilar hann íshokkí með SA Víkingum, en þess má einnig til gamans geta að faðir hans Gísli Kristinsson var áður formaður krulldeildar og móðir hans Marjo Kristinsson var formaður listhlaupadeildar og fyrsti framkvæmdastjóri Skautahallarinnar. 

Við bjóðum Jón velkominn til starfa.