Nýársmótið: Ólafur Hreinsson sigraði

Nýársmótinu lokið, liðsmenn Garpa röðuðu sér í efstu sætin.

Ólafur var í sigurliði í öllum fjórum leikjunum sem hann tók þátt í og endaði með 29 stig að meðaltali. Næstir komu liðsfélagar hans úr Görpunum, Hallgrímur Valsson og Kristján Bjarnason, með 23,8 stig, þá fjórði Garpurinn, Gunnar H. Jóhannesson með 22,4 stig að meðaltali. Alls voru það níu manns sem náðu að spila fjóra leiki eða fleiri, en það var lágmarkið til að koma til greina sem sigurvegari mótsins. Alls tóku 25 manns þátt í mótinu.

Þar sem fréttaritari hvíldi í kvöld tók hann sig til og stillti fartölvuni upp á svölunum í Skautahöllinni, setti beina útsendingu í gang í gegnum ustream.tv og tók upp jafnframt - upptökuna má koða með því að smella hér.