Nýársmót Krulludeildar og "Á svellið stelpur!"

Nýársmótið heldur áfram - og átakið "Á svellið stelpur!"

Áætlað var að fjórða umferð Nýársmóts Krulludeildar yrði leikin í kvöld, mánudagskvöldið 17. janúar. Vegna landsleiks í handbolta á HM (Ísland-Japan) í opinni dagskrá er þó óvíst hvort nógu margir mæta til að það verði keppnisfært, en það verður bara að koma í ljós.

Átakið "Á svellið stelpur!" heldur áfram og eru konur sérstaklega velkomnar á svellið í kvöld til að prófa krullu undir leiðsögn þeirra sem vanir eru.