Nýársmót Krulludeildar

Karlar og konur, vanir og óvanir halda áfram að krulla, Nýársmótið í fullum gangi og vonandi enn fullt af konum að koma í fyrsta, annað, þriðja, fjórða...

Fimmta umferð Nýársmóts Krulludeildar verður leikin í kvöld, miðvikudagskvöldið 19. janúar. Reyndar má segja að í kvöld fari fram fjórða umferð Nýársmótsins því keppni féll niður mánudagskvöldið 17. janúar, greinilega fleiri sem höfðu áhuga á leik handboltalandsliðsins við Japani en að spila krullu.

Átakið "Á svellið stelpur!" heldur áfram og eru konur sérstaklega velkomnar á svellið í kvöld til að prófa krullu undir leiðsögn þeirra sem vanir eru. Að sjálfsögðu er einnig sá möguleiki fyrir hendi að þær konur sem mæta taki þátt í Nýársmótinu.