Mmmmm Lasagna

Boðið var uppá Lasagna, gos ....

og kökur eftir hokkíleik meistaraflokks SR og SA í Reykjavík í gærkvöldi. Foreldrafélag SR stóð fyrir þessum trakteringum og settust leikmenn beggja liða niður í stúkunni eftir leikinn og tóku hressilega til matar síns.  Leikmenn SA báðu sasport um að koma á framfæri kæru þakklæti fyrir þennan velgjörning og er það gert hér með.