Meistaraflokkur SA - Björninn

S.A. mætir Birninum á laugardaginn kl 17:00

S.A. menn hafa verið að æfa stíft fyrir þennan leik og ætla sér ekkert annað en sigur. Björninn gerði sig lítið fyrir og sigraði S.R. á miðvikudaginn síðastliðinn, og má því búast þeir mæti með sjálfstraustið í blússandi botni. Stuðningsmannaliðið "VINIR SAGGA" hafa verið boðaðir á leikinn og miðað við framistöðu þeirra í leik S.A. gegn S.R. um daginn má búast við hörku stemningu í höllinni, en öskur, söngur og trommusláttur er einmitt merki þeirra. Enginn forföll eru í liði S.A. allir menn heilir og hefur Helgi "LE CUNT" lofað þrennu í þessum leik. Ekki er vitað hvort vantar í lið bjarnarins en oftar en ekki hefur verið erfitt fyrir suma þeirra að mæta norður í leiki, þar sem fjarlægðin er gríðarleg.   Semsagt hörkustuð norðan heiða og hvetjum við alla að koma í höllina og horfa á hörkuleik S.A. VS Björninn stundvíslega kl 17:00                                                        ÁFRAM S.A.!!!!!!!