Meistaraflokkur S.A. vs S.R.

Laugardaginn 17 nóv. mun S.A. fá S.r. í heimsókn. S.A. menn hafa verið að æfa stíft fyrir þennan leik og ætla sér ekkert annað en gjörsigur í þessum leik. 

En ekki má vanmeta S.R. því þeir eru með fjöldan allan af stórstjörnum, landsliðismönnum, Tékkum já og meistara Ed Maggiacomo. S.A. menn hafa verið að fínstilla "power-play" og "penalty-kill" á æfingum undanfarið og eru þaug öll að smella saman. Von er á heljarinnar stuðningsmannaliði, "vinir sagga" og ætla þeir að sjá um stemninguna í höllinni á þessum leik. Semsagt stórleikur í vændum og hvetjum við alla að mæta á þennan leik og styðja við S.A. Leikurinn hefst klukkan 20:00.      ÁFRAM S.A.!!!!!!!!!!!!!!!!!!