Meistaraflokkur

Á föstudaginn og laugaradaginn mun S.A. keppa við Narfa. Leikirnir verða á fremur ókristilegum tíma vegna 3 flokksmót þessa helgi.

Fyrri leikurinn verður kl 22:00 og seinni leikurinn kl 20:45. Narfamenn koma eflaust með gorgeirinn í botni og aukakílóin líka og ætla sér eflaust sigur. En leikmenn S.A. ætla að sjá til þess að sigrarnir lendi S.A. meginn.  Fróðlegt verður líka að sjá hversu margir Narfamenn mæta norður í leikina því eitthvað hefur verið erfitt hjá þeim manna liðið fyrir leik. T.d. náðu þeir 8 leikmönnum allaleið uppí Grafarvog, spurning hvað þeir ná mörgum norður? En ekki má vanmeta Narfana því þeir eiga gamla hunda sem geta vel sett nokkur kvikindi í netið. Semsagt von er á ágætiskemmtun og vonum við að fólk mæti og láti ekki tímann á leikjunum aftra sig. Allir að mæta!!    ÁFRAM S.A. !!!!!!!!!!