Meistaraflokkur

Meistaraflokkur S.A. spilar gegn S.R. í Hilmarshúsi í laugardalnum á laugardaginn 20 okt kl 19:00

Góð stemning er í hópnum og ætla menn og unglingar sér ekkert annað en sigur í þessum leik. S.R.-ingar hafa bætt við sig nýrri stórstjörnu frá Tékklandi svona rétt til að bæta vörnina hjá sér því einungis 3 A-landsliðsmenn eru vörninni ásamt öðrum Tékka. Ljóst er að S.A. menn mæta ekki með fullskipað lið til leiks, þar sem  meiðsli eru að hrjá nokkra leikmenn. En maður kemur í manns stað. Semsagt hörkuslagur um helgina og hvetjum við alla brottflutta Akureyringa að fjölmenna á leikinn sunnanheiða og hvetja S.A.

ÁFRAM S.A.