Marjomótið: Úrslitaleikirnir í kvöld

Í kvöld, mánudagskvöldið 18. apríl, fara fram úrslitaleikir um sæti í Marjomótinu. Sigurlið riðlanna leika um gullverðlaun, liðin í 2. sæti riðlanna um bronsverðlaun og svo koll af kolli um öll sæti mótsins.

Leikir kvöldsins:

Braut 2 (gull): Mammútar - Víkingar
Braut 3 (brons): Riddarar - Skytturnar
Braut 4 (5.-6. sæti): Fálkar - Garpar
Braut 5 (7.-8. sæti): Íslenski draumurinn - Fífurnar

Það lið sem talið er upp á undan hitar upp á undan og leikur með dökkum steinum. Það lið sem talið er upp á eftir náði betri árangri í skotum að miðju og hefur því val um síðasta stein.

Ísumsjón er skipt þannig niður að þau lið sem hafa verið með svellið einu sinni það sem af er móti fá það verkefni í kvöld, en það eru: Mammútar, Fífurnar, Víkingar og Fálkar.