Magga Finns mótið - úrslit kvöldsins


Nú er tveimur umferðum af fimm lokið á Magga Finns mótinu í íshokkí sem fram fer í Skautahöllinni á Akureyri um helgina. Team Gulli er með fullt hús eftir leiki föstudagskvöldsins.

Úrslit leikja:

SA - Team Helgi   3-2
Team Gulli - SR  8-2
Björninn - SHS 5-2
SR - SA 2-2
Team Helgi - SHS  11-0
Team Gulli - Björninn  6-1

 

Team Gulli er því með tvo sigra, SA með sigur og jafntefli, Team Helgi og Björninn með einn sigur, SR með eitt jafntefli, en SHS er enn án stiga. Þó ekki brunastiga.

Mótið heldur áfram á laugardag kl. 16.15.