Listhlaup á RIG: Fern gullverðlaun, fern silfurverðlaun til SA

SA verðlaunahafar á fyrri degi RIG
SA verðlaunahafar á fyrri degi RIG


Stelpurnar frá SA unnu þrenn gullverðlaun á fyrri degi listhlaupsmóts RIG, og ein silfurverðlaun. Í dag bættust svo við ein gullverðlaun og þrenn silfurverðlaun. Samanlagt koma þær því heim með fern gullverðlaun og fern silfurverðlaun.

Hrafnhildur Ósk Birgisdóttir var þriðja eftir fyrri dag í Junior Ladies flokki, en hækkaði sig um eitt sæti og náði silfrinu. Emilía Rós Ómarsdóttir vann Advanced Novice flokkinn og Elísabet Ingibjörg Sævarsdóttir varð önnur, sama niðurstaða og eftir fyrri daginn. Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir varð fimmta í þessum flokki. Í flokki 8 ára og yngri A vann Rebekka Rós Ómarsdóttir silfurverðlaun.

Úrslitasíða - Þar er hægt að fara inn á úrslitasíðu hvers flokks, en einnig skoða sundurliðaðar einkunnir. 

Ef smellt er á heiti flokks opnast síða með lokaúrslitum í þeim flokki:

8 ára og yngri A
2. Rebekka Rós Ómarsdóttir

10 ára og yngri A
1. Marta María Jóhannsdóttir
2. Ásdís Arna Fen Bergsveinsdóttir

Advanced Novice
1. Emilía Rós Ómarsdóttir
2. Elísabet Ingibjörg Sævarsdóttir
5. Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir

Junior Ladies
2. Hrafnhildur Ósk Birgisdóttir

14 ára og yngri B
1. Pálína Höskuldsdóttir

Junior Ladies B
1. Guðrún Brynjólfsdóttir