Kvennalandsliðið tapaði fyrir Rúmenum

Æ svei-attanns stelpurnar náðu ekki að knýja fram sigur í leiknum við Rúmena. Leikurinn var jafn og spennandi en fjallað er nánar um hann á heimasíðu ÍHÍ. Leiknum lyktaði 0-2 (0-0)(0-2)(0-0).Eitthvað gengur treglega að setja upplýsingar um leikina á Nýja Sjálandi inn á vefinn hjá alþjóðasambandinu IIHF. Þegar þetta er ritað er ekki búið að setja neitt inn um leikina sem fram fóru fyrr í dag laugardag. Ekki er ljóst hvað tefur. Því miður hefur fyrsta mark stelpnanna verið misskráð á heimasíðum IIHF en við vonum að það verði leiðrétt!