Kvennalandsliðið með bingó

Mynd: Elvar Freyr Pálsson
Mynd: Elvar Freyr Pálsson


Kvennalandslið íslands í íshokkí heldur bingó í sal Lionsklúbbins Hængs, Skipagötu 14, í dag kl. 13.00. Allur ágóði fer í undirbúning fyrir þátttöku í Heimsmeistaramótinu sem liðið tekur þátt í síðustu vikuna í mars. 

Mikið af flottum vinningum er í boði og því ástæða til að hvetja sem flesta til að mæta á bingó og styrkja stelpurnar. Athugið að ekki er posi á staðnum þannig að gestir þurfa að hafa með sér pening til að greiða fyrir spjöld og veitingar.