Keppnisferð hjá 4 flokk 26-28 febrúar

Nú er komið að skráningu í keppnisferð hjá 4 flokk A ob B liði.  Keppt verður í Egilshöll.

 

Reiknað er  með að veriðið á ferðinni verði ca 14.000 kr +/- gef ykkur upp fast verð þegar allir eru búnir að skrá sig.  Foreldrafélagið greiðir síðan niður 2 keppnisferðir hjá hverjum keppanda um 2000 kr í vetur.

 

Það verður keppt í Egilshöll en við gistum á nýjum stað Capital inn http://www.capitalinn.is/  sem er rétt hjá Perlunni.

 

Það vantar fararstjóra eins og venjulega  sérstaklega af karlkyni og einn fararstjóra  sem getur eldað gríðarlega einfaldan mat J áhugasamir endilega hafið samband.

 

Upplýsingarnar sem vantar eru :

 

Nafn á keppanda sem fer.

Fer hann í rútunni báðar leiðir eða aðra, þá hvora!

Er keppandi með matarofnæmi eða tekur einhver lyf.

Nafn á foreldri sem fer með

Fer foreldri með rútunni?

Vill foreldri gista á hótelinu með okkur

Bíður foreldri sig fram í fararstjórn / liðstjóra eða til að aðstoða.

 

Það þarf að vera búið að skrá keppendur kl 20 sunnudaginn 7 febrúar á netfangið annakristveig @hotmail.com

 

f.h. Foreldrafélags Hokkídeildar SA

Anna Kristveig Arnardóttir