Jötnar lágu í Laugardalnum, leikur á morgun

Mynd: Ásgrímur Ágústsson (22.01.2013)
Mynd: Ásgrímur Ágústsson (22.01.2013)


Jötnar mættu Fálkum á Íslandsmótinu í íshokkí karla sl. laugardag og máttu játa sig sigraða, 6-1.

Fálkar komust í 2-0 í fyrsta leikhluta, en Jötnar minnkuðu muninn undir lok leikhlutans þegar Ben DiMarco skoraði. Það reyndist þegar upp var staðið eina mark Jötna, en Fálkar unnu aðra lotuna 2-0 sem og þá þriðju. Úrslitin: Fálkar-Jötnar 6-1 (2-1, 2-0, 2-0).

Leikskýrslan

Jötnar fá ekki langa hvíld eftir Reykjavíkurferðina því þeir mæta Húnum í Skautahöllinni á Akureyri annað kvöld, þriðjudagskvöldið 15. október. Leikurinn hefst kl. 19.30.