Jötnar - Björninn

Mynd: Elvar Freyr Pálsson (15.10.2013)
Mynd: Elvar Freyr Pálsson (15.10.2013)

Einn leikur verður á Íslandsmóti karla í íshokkí í dag, laugardaginn 16. nóvember. Jötnar og Björninn mætast í Skautahöllinni á Akureyri og hefst leikurinn kl. 17.30.

Kvennalandsliðið í íshokkí er jafnframt við æfingar á Akureyri þessa helgina og leikur tvo æfingaleiki við 3. flokk SA í dag, sá fyrri hefst um níuleytið en sá síðari verður að loknum leik Jötna og Bjarnarins.

Yngstu hokkíiðkendurnir, 5., 6. og 7. flokkur, héldu til Reykjavíkur í gær þar sem þau taka þátt í helgarmóti.