Jóhann Már og Anna Sonja íshokkífólk SA árið 2022

Anna Sonja og Jóhann Már íshokkfólk SA 2022
Anna Sonja og Jóhann Már íshokkfólk SA 2022

Jóhann Már Leifsson hefur verið valin íshokkíkarl SA og Anna Sonja Ágústsdóttir íshokkíkona SA fyrir árið 2021. 

Jóhann er 29 ára sóknarmaður og spilaði stórt hlutverk í liði SA Víkinga sem urðu Íslandsmeistarar á árinu og var stigahæsti leikmaður Íslandsmótsins þar sem hann var með 16 mörk og 24 stoðsendingar í 16 leikjum. Jóhann var lykileikmaður í liði Íslands sem vann gullverðlaun á Heimsmeistaramótinu í 2. deild B í vor en Jóhann var í 5. sæti yfir stigahæstu leikmenn mótsins og var valinn besti leikmaður Íslands á mótinu og verðlaunaður fyrir að vera besti sóknarmaður mótsins. Jóhann er stigahæsti leikmaður Íslandsmótsins sem nú er í gangi með 8 mörk og 15 stoðsendingar í 10 leikjum. Jóhann hefur ávallt lagt hart að sér en líka ávallt reiðubúin að taka til hendinni fyrir sitt félag og er frábær fyrirmynd í alla staði.

Anna Sonja Ágústsdóttir er 34 ára varnarmaður og var einn mikilvægasti leikmaður kvennaliðs SA sem unnu deildar- og Íslandsmeistaratitil á árinu 2022. Anna Sonja átti einnig stórgott ár með landsliði Íslands þar sem hún spilaði stórt hlutverk í liði sem vann gullverðlaun í 2. Deild B. Anna Sonja er ekki aðeins frábær íshokkíkona því hún er líka frábær leiðtogi sem leiðir með jákvæðni og gefur ákaflega mikið af sér til annarra leikmanna. Anna settur frábært fordæmi í verki því fáir standast henni snúning í aukaæfingunum en það gerir hún þrátt fyrir að vera tveggja barna móðir sem rekur fyrirtæki meðfram búskap búandi á einum af innstu bæjum Eyjafjarðar.

Íshokkídeild SA óskar þeim báðum innilega til hamingju með titlanna og er stolt af því að hafa svo frambærilegar manneskjur innan sinna raða.