Íslandsmótið: Tólftu umferð frestað

Þrettánda umferð mótsins verður á sínum stað, tólftu frestað um viku.

Vegna úrslitakeppni í Íshokkí kvenna miðvikudagskvöldið 16. mars hefur tólftu umferð mótsins, sem vera átti það kvöld, verið frestað um viku og fer hún fram miðvikudaginn 23. mars. Þrettánda umferðin verður á sínum stað, mánudaginn 21. mars.

Framundan er því:

Mánudaginn 21. mars - þrettánda umferð
Braut 2: Garpar - Skytturnar
Braut 4: Mammútar - Víkingar
Braut 5: Fálkar Riddarar

Ísumsjón: Skytturnar, Víkingar, Riddarar

Miðvikudaginn 23. mars - tólfta umferð
Braut 2: Víkingar - Fálkar
Braut 4: Fífurnar - Garpar
Braut 5: Skytturnar - Mammútar

Ísumsjón: Fálkar, Garpar, Mammútar