Íslandsmótið í krullu 2010

Auglýst er eftir liðum sem ætla að taka þátt í Íslandsmótinu í krullu 2010. Þátttökutilkynningar berist í síðasta lagi 18. janúar.

Íslandsmót í krullu fer fram í Skautahöllinni á Akureyri í janúar, febrúar og mars 2010.

Deildarkeppni hefst 25. janúar og úrslitakeppni verður leikin 26. og 27. mars.

Þátttökutilkynningar berist til Gísla Kristinssonar í síðasta lagi 18. janúar. Netfang gisli@arkitektur.is.

Þátttökugjald er 7.000 krónur á lið.