Íslandsmót ÍSS, kaffi og kökur

Stjórn foreldrafélagsins mun standa fyrir hefðbundinni kaffisölu á mótinu og því leitum við til ykkar kæru foreldra eftir brauði sem við getum selt með kaffinu. Gott væri ef einhver gæti bakað snúða, skinkuhorn, pönnukökur eða smákökur eða eitthvað sem er hægt að selja með kaffinu. Þeir sem ætla að baka fyrir okkur hafi samband við Bryndísi, dis@akmennt.is eða sendi sms í síma 8653700. Foreldrafélagið verður einnig með sölu á smávarningi sem er vel til þess fallinn að henda inn á svellið eftir að keppendur hafa lokið keppni. Slíkt gleður alltaf.

Besta kveðja frá stjórn foreldrafélags LSA