Íslandsmeistarar

Skjáskot úr útsendingunni.
Skjáskot úr útsendingunni.


Lið 4. flokks er Íslandsmeistari í íshokkí 2014. Verðlaunaafhending fór fram í beinni útsendingu á SA TV fyrr í kvöld - og hér er upptaka af afhendingunni. Ljósmyndir síðar.

Fréttaritari hefur ekki nákvæmar upplýsingar um öll úrslit í leikjum 4. flokks á Íslandsmótinu í vetur og látum við tölfræðina liggja á milli hluta að sinni.

Fyrr í kvöld afhenti Arndís Eggerz Sigurðardóttir leikmönnum í 4A verðlaunapeninga og bikar sem Íslandsmeisturum 2014. Athöfnin fór fram í beinni útsendingu á SA TV... og hér er tengill á upptöku af útsendingunni

Eins og sjá má var heiðursfélagi Ási mættur á svellið með myndavél og stóru linsurnar til að mynda þessa meistara - ljósmyndir koma svo hér inn á sasport síðar.