Í kvöld kl. 19.30: Víkingar - Björninn

Mynd: Elvar Freyr Pálsson (14.03.2014=
Mynd: Elvar Freyr Pálsson (14.03.2014=


Þriðji leikur í úrslitakeppni Íslandsmóts karla í íshokkí fer fram í kvöld og hefst kl. 19.30. Víkingar leiða einvígið, 2-0, en þrjá sigra þarf til að hampa titlinum.

Víkingar unnu fyrsta leikinn hér nyrðra, 4-3, og annan leikinn í Egilshöllinni 6-1. Þeir geta því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í kvöld. Stuðningur áhorfenda skiptir þar öllu máli og nú þurfa Akureyringar að fylla Skautahöllina.