Hokkí um helgina og næsta þriðjudag

Hokkífólk er ekki alveg komið í jólafrí því nú um helgina fara Víkingar suður í Egilshöll og spila við Húna á laugardag kl. 16,30 en hér í Skautahöllinni á Akureyri verða kandídatar kvennalandsliðsins í æfingabúðum og svo er líka fjölskyldudagur í höllinni á sunnudag, FRÍTT FYRIR ALLA og Jólasýning LSA kl. 17. 00 1000 kall inn.

Á þriðjudaginn 20. munu Jötnar fá Björninn í heimsókn og er sá leikur kl. 19,30 en Ynjur leggja land undir fót og spila við SR konur í Laugadalnum og skv. mótaskrá hefst sá leikur kl, 20,00