Gimli/Íslandsmótið 2024

Staðan eftir fjórar umferðir
Staðan eftir fjórar umferðir

Garpar og Ice Hunt áttust við í fjórðu umferð Gimli/Íslandsmótinu á mánudagskvöld. Garpar sigruðu leikinn 5 - 3 og tryggðu sér þar með Gimli bikarinn 2024 þó ein umferð sé eftir af Gimli mótinu. Ice Hunt getur náð Görpum að stigum ef þeir vinna sinn leik í næstu umferð og Garpar tapa sínum en Garpar vinna þá á innbyrðis viðureign við Ice Hunt. Eftir næstu umferð er Gimli mótið búið og við tekur önnur umferð Íslandsmótsins en þessi mót eru spiluð saman þannig að fyrri umferðin í mótinu er Gimlimótið og fyrri umferð Íslandsmótsins. Það lið sem fær flest stig úr báðum umferðum stendur uppi sem Íslandsmeistarar.