Gimli Cup: Toppbaráttan jafnast

Ekkert lið er nú án taps á Gimli Cup. Þrjú lið hafa tapað einum leik.

Efstu liðin á Gimli Cup, Skytturnar og Garpar, töpuðu bæði leikjum sínum í fimmtu umferðinni. Skytturnar töpuðu leik sínum gegn Fífunum og Garpar töpuðu gegn Mammútum sem þar með læddu sér upp að hlið efstu liðanna. Skytturnar og Mammútar hafa nú fjóra vinninga, Garpar hafa þrjá vinninga og eiga leik til góða. Þessi þrjú lið hafa öll tapað einum leik. Fífurnar og Víkingar hafa einnig þrjá vinninga en hafa bæði tapað tveimur leikjum.

Úrslit kvöldsins:

Víkingar - Üllevål  11-1
Mammútar - Garpar  6-3
Skytturnar - Fífurnar  3-6
Riddarar - Svarta gengið  9-6

Tvö efstu liðin, Skytturnar og Mammútar, eigast við í næstsíðustu umferðinni sem leikin verður mánudagskvöldið 23. nóvember.

Öll úrslit og leikjadagskrá í excel-skjali hér.