Gimli Cup: Teygist úr mótinu vegna forfalla

Leikjum Ís-lendinga gegn Rennusteinunum og Fífanna gegn Svartagenginu frestað um viku.

Vegna forfalla er tveimur leikjum í Gimli Cup sem áttu að fara fram í kvöld, frestað til mánudagskvöldsins 12. desember. Af þeim sökum frestast úrslitaleikir mótsins einnig og verður fundin ný dagsetning á þá leiki síðar.

Í kvöld, mánudagskvöldið 5. desember fara því einungis fram tveir leikir í Gimli Cup, Mammútar og Skytturnar eigast við í undanúrslitum og Fálkar leika gegn Víkingum í keppni um 5.-8. sætið.

Dagskrá Bikarmóts Krulludeildar verður óbreytt, undanúrslit fara fram miðvikudagskvöldið 7. desember og úrslitaleikur miðvikudagskvöldið 14. desember.