Gimli Cup - 5. umferð

Fimmta umferð Gimli Cup fer fram í kvöld kl. 21-23.

Leikir kvöldsins:

Braut 1: Víkingar - Üllevål
Braut 2: Mammútar - Garpar
Braut 4: Skytturnar - Fífurnar
Braut 5: Riddarar - Svarta gengið

Ísumsjón: Svarta gengið, Mammútar, Skytturnar, Riddarar.

Miðað við stöðuna í mótinu nú má búast við spennandi lokaumferðum þar sem þau lið sem eru í þremur efstu sætunum eftir fjórðu umferð (að undanskildum frestuðum leik) eiga eftir að eigast við. Í kvöld leika Mammútar og Garpar, sem eru í 2. og 3. sæti núna, í næstsíðustu umferðinni leika Skytturnar og Mammútar, sem eru í 1. og 3. sæti núna, og í lokaumferðinni eigast við þau lið sem nú eru taplaus og í efstu sætunum, Garpar og Skytturnar. Síðan koma auðvitað fleiri lið til greina í toppbaráttuna því enn eru eftir þrjár umferðir og ýmsir möguleikar opnir.