Fyrsti leikur í Úrslitakeppni karla á þriðjudag

Úrslitakeppnin í Hertz-deild karla á milli Skautafélags Akureyrar og Skautafélags Reykjavíkur hefst þriðjudaginn 19. mars kl. 19:30 í Skautahöllinni á Akureyri. SA Víkingar eru deildarmeistarar og hefja því leik á heimavelli en leikið verður sitt á hvað þar til annað liðið hefur unnið þrjá leiki og tryggir sér þar með Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí.

Miðaverð er 2000 kr. en frítt inn fyrir 13 ára og yngri. Hægt er að tryggja sér miða í forsölu í Stubb. Við hvetjum fólk til þess að mæta í rauðu og litum þannig stúkuna í okkar lit.

Foreldrafélagið selur hamborgara og drykki í félagssalnum fyrir leik og Sjoppan samlokur svo engin þarf að fara svangur heim. Áfram SA!

 

Leikirnir í úrslitakeppninni:

Leikur 1: Þriðjudaginn 19. mars í Skautahöllinni Akureyri kl. 19:30

Leikur 2: Fimmtudaginn 21. mars í Skautahöllinni í Laugardal kl. 19:45

Leikur 3: Laugardaginn 23. mars í Skautahöllinni Akureyri kl. 16:45

* 4. leikur 26. mars í Skautahöllinni í Laugardal kl. 19:45

* 5 leikur 28.mars í Skautahöllinni Akureyri kl. 16:45

* leikir 4 og 5 ef til koma ef annað liðið sé ekki búið að vinna 3 leiki.