Fréttatilkynning frá Íþróttaráði Akureyrarbæjar.

Hin árlega úthlutun úr Afreks- og styrktarsjóði Akureyrar fer fram í hófi
sem haldið verður í Íþróttahöllinni fimmtudaginn 27. desember n.k. kl. 16:00. 
Öllum Akureyringum er unnið hafa til Íslandsmeistaratitils á árinu 2007 verður afhentur minnispeningur Íþróttaráðs. 
Árangur akureyskra íþróttamanna var góður á árinu. Samkvæmt upplýsingum sem borist hafa til stjórnar sjóðsins hafa 195 íslandsmeistaratitlar unnist á árinu og einnig voru margir Akureyringar valdir til leiks með landsliðum í hinum ýmsu íþróttagreinum. Það er von Íþróttaráðs að þessir glæsilegu afreksmenn og þjálfarar þeirra sjái sér fært að koma til athafnarinnar. Góðar veitingar verða fram bornar í boði Akureyrarbæjar.

 

Þetta þýðir sem sagt það að allir leikmenn 4., 2., og kvennaflokks eiga að mæta kl. 16:00 í íþróttahöllina og taka á móti viðurkenningum fyrir Íslandsmeistaratitla ársins.  Látið orðið berast og reynum að smala sem flestum á staðinn.