Þrjár á leið til Slóveníu

Elísabet Ingibjörg, Emilía Rós og Hulda Dröfn.
Elísabet Ingibjörg, Emilía Rós og Hulda Dröfn.


Þrír skautarar frá SA eru á leið til Ljubljana í Slóveníu til þátttöku í Dragon Trophy listhlaupsmótinu.

Elísabet Ingibjörg Sævarsdóttir, Emilía Rós Ómarsdóttir og Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir eru á leið til Ljubljana í Slóveníu til að taka þátt í Dragon Trophy um komandi helgi, ásamt nokkrum keppendum frá Reykjavíkurfélögunum. 

Keppni í Advanced Novice er tvískipt eins og alltaf. Keppni í stuttu prógrammi fer fram á föstudag á bilinu 9.30-14.30 að íslenskum tíma. Frjálsa prógrammið verður síðan kl. 16-21 að íslenskum tíma á laugardaginn.

Dagskrá mótsins

Á úrslita- og tölfræðisíðu mótsins má nálgast keppnisröð þegar hún kemur inn og svo úrslit þegar þar að kemur.

Úrslitasíða - Dragon Trophy
Úrslitasíða - Tivoli Cup 
Heimasíða mótsins

Framundan er síðan þátttaka skautara frá SA á Norðurlandamótinu í Stokkhólmi og Sportland Trophy í Búdapest í lok febrúar og byrjun mars. Nánar verður sagt frá því síðar.