Fern verðlaun til SA á Frostmótinu

Frostmót listhlaupadeildar SA fór fram um helgina. Alls voru 86 keppendur skráðir til leiks, þar af 18 frá SA, mun fleiri en í fyrra þegar aðeins einn keppandi var héðan.

Í Frostmótinu er keppt í C-flokkum allra aldursflokka. Skautafélag Akureyrar hlaut fern verðlaun á mótinu, 1 gull, 2 silfur og 1 brons. Skautafélagið Björninn hlaut alls 8 verðlaun, 3 gull, 2 silfur og 3 brons. Skautafélag Reykjavíkur hlaut alls fern verðlaun, 2 gull, 1 silfur og 1 brons.

Myndir frá mótinu eru ekki tilbúnar, en koma vonandi í albúm hér á vefnum fljótlega.

Úrslit Frostmóts:

8 ára og yngri C
1. Amanda Sigurðardóttir, SR
2. Júlía Rós Viðarsdóttir, SA
3. Bríet Jóhannsdóttir, SA

10 ára og yngri C
1. Harpa Karin Hermannsdóttir, SB
2. Hugrún Anna Unnarsdóttir, SA
3. Íris Fjóla Friðriksdóttir, SR 

11 ára og yngri C, drengir
1. Brynjólfur Skúlason, SA

12 ára og yngri C
1. Íris Ólafsdóttir, SB
2. Sigrún Maggý Haraldsdóttir, SB
3. Karen Glóey Guðnadóttir, SB

Novice C
1. Þórhildur Benediktsdóttir, SB
2. Halldóra Áskelsdóttir, SB
3. Selma Farajsdóttir Shwaiki, SB

Junior C
1. Alexandra Þorsteinsdóttir, SR
2. Alrún María Skarphéðinsdóttir, SR
3. Helga Lára Gísladóttir, SB