Evrópumótið: Ísland 10, Hvíta-Rússland 4

Íslendingar unnu góðan sigur á Hvít-Rússum í seinni leik dagsins.

Liðið spilaði vel í dag, sérstaklega í síðari hluta leiksins. Þegar leikurinn var hálfnaður var staðan jöfn, 3-3. Eftir leikhléið skoruðu Hvít-Rússar eitt stig í sjöttu umferðinni en þá sögðu Íslendingar hingað en ekki lengra og unnu næstu þrjár umferðir, skoruðu 7 stig í þremur umferðum (fyrsta þristinn sinn í mótinu). Þegar níundu umferð lauk lögðu Hvít-Rússar niður vopnin, endanleg úrslit 10-4.

 Ísland 
 1 
 1
1
  3 2 2 x
10
 Hvíta-Rússland
  1
 2   1
    x 4

Næsti leikur er gegn Austurríki í fyrramálið kl. 8. Erfiður leikur en samt möguleiki ef liðið spilar jafn vel og í dag.